Allú allú!

Ég er alveg sjúk í hljómsveit sem heitir MGMT þessa dagana. Verð reyndar að taka fram að ég var ekki alveg viss hvar ég ætti að birta þessa grein, hefði viljað umræðuþráð sem kallast nýjar hljómsveitir en “oh well”.

Xið hefur verið að spila “singulinn” Time to pretend og í kjölfarið fór ég á myspacesíðu MGMT og ég bara féll í stafi. MÉR FINNST ÞEIR ALVEG ÆÐISLEGIR! Mikið vona ég að Airvawes grípi þá þó svo að fjárhagurinn sé í kröggum:S

Hafa fleiri hér inni hlustað á þá? Hvað finnst ykkur?