Í gær eða fyrradag rak ég augun í einhvern orðróm um það að Twiggy Ramirez og Marilyn Manson ætluðu að fara að vinna saman aftur. Í dag kíkti ég á vefsíðu hljómsveitarinnar, og við mér blöstu þær miklu gleðifréttir að Tim Skold er hættur (sem er nú svosem ekki mikil gleði) og Twiggy er kominn aftur.

Hvað finnst ykkur um þetta? Eða er kannski öllum sama?