Við erum tveir félagar (fæddir 84 og 85) að leita að trommara til að spila með okkur. Við erum báðir gítarleikarar (búnir að spila í ca 5 ár) og getum báðir spilað á bassa og smá á hljómborð. Einnig vantar okkur húsnæði sem fyrst! Við erum staðsettir í Reykjavík

við erum að semja og leika okkur og vantar áhugasaman trommara og jafnvel bassaleikara líka.

Ég get eiginlega ekki sagt hvað við spilum mest, við semjum bara eitthvað sem okkur finnst flott, blús, punkrokk, rokk, whatever, viljum ekki festast í einni stefnu. en þegar við spilum cover lög eru það oftast lög eftir radiohead, ccr, green day, pearl jam, hendrix o.fl.

ef þú ert góður trommari, hugmyndaríkur og ert ekki pussy whipped skaltu endilega vera í bandi