Ég var að lesa það í Undirtónum að allir upprunalegu meðlimir hljómsveitarinnar Jet black Joe ætli að koma saman á tónleikum föstudaginn 21. des. Tónleikarnir verða haldnir í Kaplakrika og þeir eru að sögn Gunnars Bjarna gítarleikara þeir allra, allra síðustu tónleikar sveitarinnar. (hvað hefur maður heyrt þetta oft):)
En mér finnst þetta góðar fréttir og ég hlakka til að sjá þá alla saman á tónleikum þar sem ég var of ungur á sínum tíma til að sjá þá.

Kveðja, Rose