Það vildi loða við þetta prýðisáhugamál á tímabili að sumir Hugarar fóru hamförum í dónaskap og barnalátum. Sem betur fer dró úr því og þetta fór að verða skemmtilegt og mjög lifandi áhugamál.

Ég dró verulega úr heimsóknum mínum hingað út af ofangreindu þar sem ég nennti ekki að róta í gegnum sorann. Nú hinsvegar kem ég hingað daglega til að ræða um kunnuglega tónlist og fræðast um framandi og spennandi hluti.

Því miður virðist vera orðið algengt aftur að menn vaði upp með móðganir og dónaskap hér á áhugamálinu. Það þykir mér slæmt. Ég vill því hvetja ágæta stjórnendur hér að fylgjast vel með, nota dómgreind sína og beita rétti sínum til að eyða svörum sem þeir telja tilgangslausan dónaskap. Einnig getur virkað vel til að róa svona niður að vara notendur við, bæði opinberlega og annars, ef þeir hafa gerst of grófir.

Virðingarfyllst,
Mal3<br><br>Who died and made you Elvis? - Cordelia