Bloc Party á Iceland Airwaves 2007
Breska rokksveitin Bloc Party verður meðal þeirra sem troða upp á Iceland Airwaves 2007, en hún hefur notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði og breiðskífa hennar, A weekend in the city, hlotið mikið lof gagnrýnenda. Þá mun kanadíski rapparinn Buck 65 einnig koma fram. Hátíðin fer fram 17.-21. október, í miðborg Reykjavíkur. Alls munu um 170 sveitir koma fram á hátíðinni í ár, bæði erlendar og innlendar.

Þetta verður geðveikt, mér langaði alltaf að sjá Bloc Party í live