Finnst ég bara verða að koma með smá innlegg um einn enskan gítarleikara sem ég svei mér þá held að sé einn ef ekki bara sá tæknilegasti sem er að gefa eitthvað út þessa dagana. Vert er að minnast á að gítarleikarar á borð við Satriani, Bumblefoot, Greg Howe, Steve Vai og margir fleiri hafa farið mjög fögrum orðum um þennan mann og einnig fyrsta diskinn hans.

Guthrie Govan heitir maðurinn og starfar við kennslu í BIMM skólanum í London ásamt því að spila með ýmsum hljómsveitum. Hann gaf nýlega út sinn fyrsta disk sem gengur undir nafninu ‘Erotic Cakes’ sem ég verð að játa að er langtum besti instrumental gítar diskur sem ég hef heyrt.

Mæli með að fólk kíkji á nokkur video með honum, ég rétt skrifa þetta inn vegna þess að þessi maður er frekar óþekktur og ef ég vissi ekki af honum nú þegar þá myndi ég vilja að einhver myndi benda mér á hann.

http://youtube.com/watch?v=DL0qRcKo5FM

http://www.youtube.com/watch?v=ZmcZ9C1-w1s&mode=related&search=

http://youtube.com/watch?v=DL0qRcKo5FM

Annars bara gera leit á www.youtube.com undir Guthrie Govan ef einhverjum langar að kíkja á fleira. Endilega fólk að segja hvað því finnst um þennan spilara.

Takk fyrir mig,
Balli.
Takk fyrir mig,