Var einhver á tónleikunum á Gauki á Stöng á laugardaginn þegar Sparta og Chicks on Speed áttu að spila? Ég steinsofnaði heima og missti af þeim. Vaknaði um eittleytið og hljóp niðrá Gauk og vonaði að ég næði að sjá eitthvað. Þar var greinilega allt búið, bara einhver DJ. Ég ætlaði að fara en þá kom einhver finnskur karaókímeistari og tók Led Zeppelin lag og reif sig úr að ofan…svo það var samt þess virði að fara. Anyway, hvernig var á þessum tónleikum???