Uppáhalds gítarleikararnir mínir Uppraunanlega átti þetta að vera topp 5 listi en þá fannst mér það ekki nóg þannig þetta breyttist í topp 10 lista en þá gat ég ekki ákveðið mig yfir hverjir væru í hvaða sæti þannig þetta er bara listi yfir uppáhalds gítarleikurunum mínum

Saul Hudson
Betur þekktur sem slash, hefur alltaf verið eitt af idolunum mínum. Án vafa snillingur. Þrátt fyrir að ég dýrka hann í Guns n Roses þá finnst mér hann betri í Velvet Revolver og Slash's Snakepit.

Zakk Wylde

Meistari Pentatonic skallans.Lead gítarleikari Ozzy's og Lead gítarleikari og söngvari í hljómsveitinni Black Label Society. Soloið hans í No More Tears er rugl mikil snilld.

Jimi Hendrix

Það er nú óþarft að kynna þennan snilling.

Dimebag Darrell

Kúrekinn úr helvíti. Lead-gítarleikari Pantera, Damageplan og Rebel meets Rebel. RIP

John Frusciante

Gítarleikari hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers. (Mother's Milk, Blood Sugar Sex Magik, Californication, By the Way og Stadium Arcadium).

Randy Rhoads

Einlægur nemandi klassíksra gítarleiks. En hann notaði þann stíl í metalnum með Ozzy.

Kirk Hammett

Lead gítarleikari Metallica og fyrrum nemandi Joe Satriani

James Hetfield

Aðal lagahöfundur metallica, rythem gítarleikari metallica, söngvari metallica, stofnandi metallica, í mínum augum er hann metallica

Yngwie J Malmsteen

Montrass og svíi en samt geðveikur gítarleikari.

Rafael Moreira

Gítarleikari housbandsins í Rockstar þáttunum. Ég algjörlega féll fyrir honum þegar ég sá hann live með magna