Nú hef ég heyrt mikið um þennan kappa, mest allt (ef ekki bara allt) er mjög gott, hann er iðulega lofaður í hástert. En þó svo að ég hafi oft heyrt talað um hann og minnst á hann að þá hef ég ekki heyrt mikið með honum, eiginlega ekki neitt. Og af því sem ég hef heyrt um hann virðist hann vera mjög áhugaverður tónlistarmaður. Og mig langar til að kynna mér hann betur. Ég ætla því að leita hjálpar hjá ykkur, hvaða plötu á ég að kaupa? Bara eina plötu, til að byrja með.

Bætt við 23. desember 2006 - 21:09
Jæja, vegna samróma hug ykkar ákvað ég að skella mér á þessa Illinios plötu, búinn að hlusta á hana einu sinni í gegn og þetta virðist bara vera hinn fínasti gripur, er að hlusta á hana aftur og held að hún eigi eftir að vera betri, maður verður að venjast, er svoldið öðruvísi en það sem ég hlusta reglulega á.