Ég trúi á Kurt Cobain, Guð okkar almáttugan,
skapara alvöru rokks og grunge-ins.
Ég trúi á hans lagasmíði, hans rödd,
Frelsara vorn, sem bjargar okkur úr vondu skapi,
fæddur af guðs (hans) náð,
píndur á dögum heróíns-skorts,
uppdópaður, dáinn og dýrkaður,
steig niður til heljar,
reis á sama degi aftur upp frá dauðum,
heldur áfram að láta fólk elska sig,
situr hér við hægri hönd okkar allra
og mun þaðan koma að hjálpa okkur að fá útrás,
með tónlist sinni.
Ég trúi á heilagan anda hans,
heilaga, almenna tónlist hans,
samfélag NIRVANA, hljómsveitar hans,
fyrirgefningu við að trúa á aðra guði en hann,
upprisu hans og eilíft líf hans.

AMEN!!!