Hljómsveitin Weezer hefur ákveðið að hætta við tónleikaferðalag sitt um Evrópu. Þeir ætluðu að fara til helstu landanna í Evrópu í Októbermánuði en nú hafa þeir hætt við allt. Ástæðan fyrir þessu eru mjög líklega atburðirnir sem áttu sér stað í Bandaríkjunum 11. september. Weezer voru samt búnir að gefa út þá yfirlýsingu að þeir ætluðu ekki að láta þetta hafa áhrif á tónleikaferðalag sitt um Evrópu en vegna nokkurra ástæðna þá ákváðu þeir að fresta því.

Sjálfur ætlaði ég að fara á tónleika með þeim í Danmörku 9. október.

:(