Fyrir áhugasama:

Tónleikar með Rolling Stones í Danmörku -TILBOÐ

Rolling Stones verða með tónleika í Horsens í Danmörku 3. september. Við hjá Express Ferðum höfum náð að tryggja okkur nokkra miða og ætlum að skella okkur á tónleika Rolling Stones í Horsens Forum í Horsens. Þetta verða einu tónleikar Rolling Stones í Danmörku að þessu sinni.

Verð
Ferðin kostar 69.900 kr. á mann og innifalið er flug til Kaupmannahafnar og heim aftur, gisting í tvær nætur í Kaupmannahöfn, gisting í eina nótt í
Aarhus með morgunverði og miði á tónleika Rolling Stones. Miðað er við að tveir séu saman í herbergi.

Flugferðin
Lagt er af stað frá Íslandi með Iceland Express klukkan 15:30 föstudaginn 1. september og lent í Kaupmannahöfn tæpum þremur tímum seinna. Flogið er heim á leið með seinni vél Iceland Express mánudaginn 4. september.

Tónleikastaður
Tónleikar Rolling Stones fara fram í Horsens Forum í Horsens. Tónleikarnir eru á dagskrá sunnudaginn 3. september 2006.

Forfallatrygging
Express Ferðir býður farþegum forfallatryggingu sem tryggir fulla endurgreiðslu fargjalds sé læknisvottorði/lögregluskýrslu framvísað. Hægt er
að kaupa slíka tryggingu hjá okkur í síma 5 900 100. Forfallatrygging kostar 4000 krónur fyrir hvern einstakling í ferð. Hægt er að skoða skilmála fyrir forfallatryggingu Express Ferða á vefsíðu fyrirtækisins undir skilmálar.

Hótel
Square Hotel í Kaupmannahöfn
Atlantic Hotel í Aarhus


Verð: 69.900 ISK
Flug: IcelandExpress
Resting Mind concerts