Hvernig í ósköpunum stendur á því að enginn er búin að senda póst um þetta!? Þetta var tilkynnt á púlsinum fyrir meira en viku. Þegar ég heyrði þetta fannst mér bara vera að koma jól. Þetta verður örugglega viðbjóðslega gaman…eða algjört flopp. Either way þá ætla ég sko ekki að missa af þessu. Fyrst hélt ég að þetta myndi skemmast því að þetta yrði örugglega auglýst geðveikt mikið og það komast nú ekki margir á Gaukin þrátt fyrir stækkun, en svo hef ég bara ekki heyrt NEITT um þetta og þetta á að vera á morgun??? Hafið þið heyrt eitthvað?