Hljómsveitirnar Noise, Út-Exit og foreign monkeys munu spila í Pakkhúsinu á Selfossi í kvöld, fimmtudaginn 24.ágúst. Á morgun verða sveitirnar svo í Félagsmiðstöðinni á Hvolfsvelli og um kvöldið á Bar Kristján á Hellu. Þetta endar svo allt saman í Leikskálum í Vík í Mýrdal á laugardagskvöldið. Noise munu spila efni af væntanlegri plötu, sem kemur út í september. Allir hvattir til að fjölmenna á alvöru rokktónleika.