>>> Á leiðinni er Greatest Hits diskur frá hinni frábæru, framliðnu hljómsveit Smashing Pumpkins (blessuð sé minning þeirra). Hún kemur út 20. nóvember næstkomandi.

> Billy Corgan birtist sem óvæntur gestur á MTV Smashing Pumpkins Tribute tónleikum í Chicago Metro tónleikasalnum 6. júli síðastliðinn.
Hann sagði tónleikagestum að á leiðinni væri greatest hits plata, og einnig b-sides plata í takmörkuðu upplagi, sem myndi innihalda lög sem hætt hefði verið við að láta á Mellon Collie And The Infinite Sadness, Adore og Machina|The Machines Of God.

> Til að toppa þetta eru tveir DVD-diskar á útgáfudagskránni fyrir árið 2002. Meðal annars eiga þeir líklega eftir að innihalda auglýsingamyndbönd og upptökur frá lokatónleikum þeirra.

-Foo
ég er bara ég. þú ert bara þú. hver er orginal?