Ég var að byrja að hlusta á Angels & Airwaves, alveg þessi 2 lög sem ég fann.

Good Day.
Ég elska þetta lag, elska röddina í Tom Delonge og flottur taktur, skemmtilegur blink fílingur í þessu lagi.
Lærði textan fljótt og hann er ekki eins niðurdreginn eins og textarnir hjá blink.

The Adventure.
Mér finnst þetta lag vera eithvað svo sérstakt, en það er alveg ógeðslega gott.
Enn meiri blink fílingur í þessu en hinu og áfram heldur Tom að syngja snilldarlega (kannski er það bara ég?) en mér finnst good day betra.

Ég finn hvergi önnur lög með þeim, veit einhver hvar ég get fundið þau?
og hvað finnst ykkur um þessa hljómsveit?
Ég get ekki beðið eftir disknum sem kemur úr 23. maí.