http://beygla.is/fullnews.php?id=399&table=news1

[Tónlist | Edda| 23/02/2006 kl.10:02]

Franz Ferdinand gefur út nýja plötu


Diskórokkararnir hressu í Franz Ferdinand eru með nýja plötu í hillum tónlistarverslana landsins.

Platan hefur hlotið nafnið “You could have it so much better” og er þetta önnur plata þeirra kumpána. Miðað við vinsældir þeirra hérna uppi á klakanum má gera fastlega ráð fyrir því að þessi plata verði ekki síður vinsæl en frumburðurinn.

Platan hefur verið lofuð í hástert af gagnrýnendum og þykir mörgum hún jafnvel betri en fyrsta plata Skotanna, en sú plata þótti einmitt vera með þeim betri í fyrra.

Eins og margir muna voru Franz Ferdinand með tónleika í Kaplakrika í byrjun september sem þóttu heppnast gríðarlega vel.

Nú verðum við bara að vona að hægt sé að plata þá á klakann aftur.

Þessi plata kom út 3. október í fyrra ef ég man rétt.. þeir á Beygla.is alveg í ruglinu.