Noise, Dimma og Nilfisk verða með hörku rokktónleika á gauki á stöng annað kvöld, föstudagskvöldið 16.des. Noise munu spila efni af væntanlegri plötu sem kemur út von bráðar. Dimma og Nilfisk munu spila efni af nýútkomnum plötum sínum. Það kostar ekki krónu inn ig allir rokkáhugamenn hvattir til að mæta. Húsið opnar 22.00 og hefjast herlegheitin um 23.