Ég er nú MJÖG SVEKKTUR,

yfir þessu rugli og grátbið ykkur um að byrja undirskrifta-lista (ég er nabbla bara 16). Ég verð að komast!! Besti vinur minn sem er án efa einn sá langharðasti Coldplay aðdáandi á íslandi og mun ekki heldur komast nema það verði ekki gert eitthvað róttækt í málinu. ÞAð sem ég skil ekki er, afhverju það er verið að hafa áfengar veitingar á þessum tónleikum þegar markhópur þessarar hljómsveitar er aðallega undir þeim aldri sem má neyta áfengis samkvæmt íslenskum lögum.

Þetta er fáránlegt og því bið ég ykkur admin-a hugi.is hér með að stofna undirskriftalista hér á huga (ekki endilega bara á rokkinu)

Sjálfur ætla ég að hringja niður eftir að kvarta og hvet ykkur til þess að gera hið sama.

kær kveðja með von um eitthvað feedback,
supernova

_____________________________