Ég heyrði í dag að hin frábæra hljómsveit Jet Black Joe
ætli að koma saman fyrir Eldborgar hátíðina um verslunarmannahelgina.
Þetta finnst mér vera frábærar fréttir,
því hljómsveitin hefur ekki spilað saman í 5-7 ár held ég.
Að mínu mati er þetta ein af bestu rokk hljómsveitum Íslands.
Þeir gáfu út þrjár breiðskífur og komust meira að segja
í þriðja sæti á einhverjum vinsældarlista í Filipseyjum.
Ég mæli með því að fólk kíki á tónleikana.