Ég hef verið að skoða þessa hljómsveit undanfarið og finnst mér hún alveg hreint algjör snilld. Þetta er mjög fræg hljómsveit og eflaust vita margir hér hver hún er en ég heyri ekki oft talað um hana nema á erlendum síðum. Söngvarinn í henni er sá sami og í A perfect circle ( ein af mínum uppáhalds ).

Annars þá hef ég tvær spurningar:

Er einhver hér sem hlustar á Tool ?

Veit einhver hvort diskar með þeim séu seldir á Íslandi ? ( ekki til í Skífunni )
gusti@esports.is