Ég verð bara að segja þetta.


Rammstein hefði aldrei orðið vinsæl grúppa á Íslandi ef Tvíhöfði hefði ekki byrjað að spila hana og prómóta. Það er bara staðreynd. Þetta er ekki einu sinni skemmtileg hljómsveit.
Lögin þeirra eru auk þess öll NÁKVÆMLEGA eins. Þeir eru gott dæmi um hljómsveit sem er algjörlega stöðnuð og neitar gjörsamlega að þróa stílinn sinn og þroskast.

Veltið líka einu fyrir ykkur. Túrinn þeirra var þannig að þeir fóru t.d. til London og spiluðu þar fyrir 700 manns. 700 manns er ekki neitt! Svo koma þeir til Íslands og spila fyrir 12.000 manns. Eftir það fljúga þeir alla leið til Brasilíu til að spila þar. Haaaalllóóó…

Rammstein er flipp hjá Tvíhöfða sem fólk gekk of langt með.