Ég heyrði frá vini mínum að merkin sem eru inni í bæklingnum fyrir Mellon Collie and The Infinite Sadness með Smashing Pumpkins merki ýmislegt, og þá aðallega hluti eins og “fyrsti sonur” og fleira þess háttar. Núna langar mig, eftir öll þessi ár, að fara að komast að því hvað þessi merki tákna, þannig að ég er að velta fyrir mér hvort að einhver sé hugsanlega með einhverja töflu yfir hvað merkin tákna, eða að einhver hafi link á síðu sem greinir frá hvað þau tákna. Ef einhver býr yfir þessum upplýsingunm þá væri gaman að þeim yrði deilt.

Takk Fyri