“Eins og við á XFM greindum frá í síðustu viku ætlar Billy Corgan að ná stórsveitinni Smashing Pumpkins saman á ný. Nú hefur Jimmy Chamberlin, trommari Pumpkins, tjáð sig um málið þar sem hann lýsti yfir áhuga sínum á fréttunum. ”Smashing Pumpkins samanstendur af Billy, James Iha, D'arcy og mér,“ sagði Chamberlin. ”Vonandi náum við þessum hópi saman aftur en ég get aðeins talað fyrir sjálfan mig og segi hér með að þið getið gert ráð fyrir mér þegar Pumpkins kemur saman á ný,“ staðfesti Jimmy Chamberlin. Þess má geta að Smashing Pumpkins spilaði síðast á tónleikum í desember árið 2000.”
tekið af xfm.is
www.bit.ly/1ehIm17