Hljómsveitin “The Bleak December” auglýsir eftir bassaleikara.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur í meira lagi, kunna allavega grunnatriði í tónfræði og svoleiðis og vera á heildina litið svalur gaur.

Tónlistarstefna sveitarinnar er nokkuð óákveðin, en rokk er á stefnuskránni. Skrítið rokk, kannski út í “Godspeed, you black emperor”. Nema við förum út í “The Strokes”… eða kannski “AC/DC” við bara vitum það ekki.

Viðkomandi þyrfti líka helst að geta samið eitthvað og verið frumlegur og skemmtilegur.

Áhugasamir vinsamlegast sendið mér skilaboð á Huga, eða svarið þessum pósti.

Í svörum (umsóknum) þarf að koma fram aldur, kyn, áhrifavaldar, hve lengi þú hefur spilað, aðrir hæfileikar og svo eitthvað fleira.

Takk, takk

(Djöfull ætla ég aldrei að taka nokkurn mann í atvinnuviðtal, það er svo fokking erfitt að vera svona alvarlegur!!!)