Átt þú dýnu sem þig vantar að losna við, ertu t.d. að flytja, fá þér nýtt rúm eða slíkt, eða þekkirðu einhvern sem slíkt er ástatt fyrir?

TÞM er að byggja sér upp svefnaðstöðu fyrir bönd sem koma þangað að spila (erlend bönd t.d.), vegna þess að það er nokkuð mikilvægt að geta sleppt við þann kostnað sem bundinn er í því að borga undir þær gistingu.

Eins og margir vita er ég að fá tvær danskar sveitir til landsins eftir nokkra daga og vantar enn nokkrar dýnur til að geta hýst þær allar. Einnig vantar TÞM rúmföt, aðallega lök… Ef þið eigið einhver gömul rúmföt inní skáp sem þið notið ekki lengur, eða eru orðin e.t.v. eitthvað gömul, þá mæli ég með því að þið ánafnið TÞM þau. Sama gildir um sængur eða slíkt!

Speak up!
Resting Mind concerts