Ég er kominn með nýju plötuna frá Armennsku þungarokkurunum, og satt best að segja þá er ég lítt hrifinn eftir að hafa rennt yfir diskinn einusinni, finnst lögin þeirra vera kominn útí frekar mikla steypu bara en þó er ég búin að finna ein 3 ágætis lög.

Lagalistinn er eftirfarandi

1.Soldier Side(Intro)
2.B.Y.O.B.
3.Revenga
4.Radio/Video
5.Cigaro
6.The Cocaine Makes Me Feel Like I'm On This Song
7.Violent Pornography
8.Question!
9.Sad Statue
10.Old School Hollywood
11.Lost In Hoollywood

Og finnst mér persónulega síðustu 3 lögin svona bestu eiginlega svona fljótt á litið, en Old School Hollywood er svolítið frábrugðið öðrum lögum þeirra. Mér sárnar að sjá hvað síðust tvær plöturnar frá þeim eru mun slakari heldur en tvær fyrstu, engir slagarar á þeim nýju að finna eins og Spiders, Chop Suey, Toxicity ofl.

En mæli samt svosem með því að þið fáið ykkur þessa plötu, gefa henni sjens, álit ykkar kann að vera öðruvísi en mitt.