Já mér brá heldur þegar ég sá í DV í dag auglýsingu frá Xinu 977 þar sem stóð Afsakið hléið. Þar sem að ég er harður rokkari and i hold a fucking grudge þá blöskraði mér þetta.

Fyrr á árinu lögðu norðurljós/356 þetta niður vegna þess að þetta þótti ekki nógu arðvænlegt og ekki góður markaðshópur til að stilla á. Nú þegar búið er að skipta upp mannskapnum þar þá á bara fara opna stöðina uppá nýtt og láta einsog ekkert hafi í skorist!

Þótt að samkeppni er alltaf að hinu góða, þá má ekki gleyma að þetta er fólkið sem DRAP ROKKIÐ í heilan dag. Allir þeir sem vilja rokkinu illt, eiga ekkert gott skilið.

XFm bjargaði rokkinu, besta starfsfólkinu af gamla Xinu og komu sér þannig í dýrlingatölu hjá mér!

Sniðgöngum XIÐ!!!!

Rúnki Rokk!