Ég veit að vandamál mitt er léttvægt í ljósi angistar niðurbrotnu sálanna sem fengu ekki miða…en…ég fékk miða í stæði, og kemur síðan í ljós að mér býðst miði í stúku ef ég vil. Ég vil auðvitað sjá allt vel, en ég get ómögulega hugsað mér að sitja kyrr á Rammstein tónleikum. Ef maður á miða í stúku, veit þá einhver hvort hægt sé að skreppa niður ef andinn kemur yfir mann, og ef svo, er manni hleypt aftur upp í stúku?