Oh vhá ég vissi ekki að það væri bannað að halda upp á Aaron Lewis!!!! Ef þið ætlið að rífa kjaft um Aaron þá ætla ég að rífa kjaft við ykkur. Ég vildi bara fá að vita afhverju hann Moli þolir ekki Aaron Lewis. Og þegar ég heyrði að Moli þolir ekki Aaron því hann er vinur Fred Durst þá æsti ég mig dálítið upp því mér finnst þetta asnaleg ástæða. Aaron hefur aldrei gert/sagt neitt til að fá fólk til að hata sig og mér finnst það bara mjög leiðinlegt að fólk(eins og Moli) skyldi hata hann út af því hann er vinur Fred Durst.


Og talandi um Fred Durst. Mér er skítsama um hvað ykkur finnst um Fred Durst!!!!! Mér finnst hann ekki góður söngvari og ég hlusta ekki á Limp Bizkit. Ég æsti mig bara upp því þegar ég póstaði “Fred Durst er að fara gera kvikmyndir” póstinn, þá fóruð þið að gera leiðinlegt comment um hann eins og “Vonlaus söngvari, vonlaus mynd”. Bara út af því ykkur finnst hann lélegur söngvari þá þurfið þið ekki dæma leikstjórnahæfileikana hans. Ég er að vonast að Fred Durst muni hætta sem söngvari og gerast leikstjóri til frambúðar, en það mun ekki gerast ef þið ætlið að halda áfram að vera með svona attitude!!!!!!