Djö… seiðmagnað maður! Ef að platan verður nálægt þessari snilld, þá leyfi ég mér að halda því fram að rokksaga Íslands eigi eftir að bera þess merki eftir það.
Mér finnst það líka vera ansi skemmtilegt að það var hljómsveitin Groove Armada sem valdi þetta lag sem lag vikunnar hjá itunes. Þeir eru nú ekki þekktir fyrir að vera miklir rokkarar og hafa að mestu haldið sig í rafrænu hingað til (i see baby , shaking that ass).
Nafn þeirra virðist því geta náð ansi langt án þess að maður hafi nokkuð tekið eftir því, amk ekki undanfarið.