Hljómsveitin LeFT spilar metalcore og eru nýbúnir að gefa út sína fyrstu plötu sem heitir “My disease” og er þrusugóð. Það er ekki hægt að nálgast hana hér í plötubúðum (held ég) en það er hægt að panta diskinn frá amazon.com og fleiri netverslunum. Þið getið tékkað á LeFT á heimasíðunni þeirra leftmusic.com og hlustað á nokkur lög þar.