Ég var að hlusta á nýja diskinn með Rammstein Reise, Reise og mér finnst bara öll lögin á disknum helvíti góð nema kannski lag númer 7 sem ég held að heiti moskvo. En mér finnst á efa besti diskurinn sem Rammstein hefur gefið út vera Mutter. Á Mutter er líka uppáhalds lagið mitt með Rammstein sem heitir Sonne en mér finnst samt eiginlega öll lögin þeirra mjög góð en þetta er svona meira í uppáháldi hjá mér. En ég mæli með því að fólk fari strax og kaupi sér þetta meistaraverk.