Hvað finnst fólki svo um Creed. Mér finnst þessi hljómsveit vera öskrandi snilld. Ég er svo ekki að skilja með að Creed sé kölluð svitafýlurokk, ef einhver hljómsveit ætti að fá það nafn á sig væri það Metallica eða Wheatus! Svo er mikið talað um það að Creed séu bara eftirhermur af Pearl Jam, sem er kannski á suman hátt rétt en er þá Papa Roach ekki Korn wannabes og Metallica Iron Maiden wannabe? Svo heyrði ég það allra fáranlegasta að Creed væri blanda af Pearl Jam og Nirvana, hvernig getur fólk eiginlega reiknað það út? Er hægt að segja að Blink 182 sé blanda af ASH, Offspring og Eminem? ÞAð er engin hljómsveit til sem spilar blandaða tónlist af Pearl Jam og Nirvana svo þá er Creed tæknilega að herma eftir ekki neinum! Svo ef þú ert ekki að fíla Creed, þá er heill hellingur af heilbrigðu fólki sem gerir það því meðal annars var Higher í 2. sæti á árslista Radio-X á síðasta ári og báðar plöturnar þeirra hafa selst í ansi mörgum eintökum!