þetta er að gerast um helgina:

kimono
bar 11 (laugaveg 11)
kl: 23:00
frítt inn

kimono eru á fantaflugi þessa dagana. nýtt myndband við lagið japanese policeman fer senn í spilun. fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá myndbandið á undan öðrum þá er hægt að ná í það á heimasíðunni okkar, www.mineur-aggressif.com
kimono munu gera víðreisn í júli. seyðisfjörður mun ekki fara varhluta af því þegar slopparnir mæta ásamt rjómanum af íslenskri tónlistarflóru á LungA, listahátíð unga fólksins á austurlandi, þann 16. júlí.

23.-30. júlí verðum við á ferð um austurströnd bna þar seum við munum m.a. spila á hinum sívinsæla stað the knitting factory í new york. nánari upplýsingar verða veittar á heimasíðunni þegar nær dregur.

give it a shot!

www.mineur-aggressif.com