Fimmtudagsforleikur Hins hússins, 11. mars nk.

Rokk af hinum ýmsustu gerðum!!!

Fram koma:
Brain Police
Victory or Death
Sans Culot

Hverjir eru þessir Sans Culot???
Sans Culot voru nokkuð iðnir við tónleikahöld fyrir c.a. ári síðan, tóku m.a. þátt í músíktilraunum og fengu glimrandi góða dóma frá Árna Matt. Á þeim tíma var þeim líkt við sveitir á borð við ‘Godspeed You Black Emperor!’ og ‘Stars of the Lid’ en hafa tekið töluverðum breytingum undanfarið og verður forvitnilegt að sjá…..

Hverjir eru þessir Victory or Death???
Victory or Death eru metnaðarfullir einstaklingar sem spila teknískan og melódískan metal af betri gerðinni! Þeir hafa verið nokkuð duglegir við að spila undanfarna mánuði og verða örugglega áberandi á þessu ári!

Hverjir eru þessir Brain Police???
Brain Police á ekki að þurfa að kynna fyrir nokkrum manni. Þeir eru fyrir löngu orðnir rokkarar á heimsmælikvarða og verða bara þéttari með hverjum degi sem líður. Ef þú ert ekki búinn að sjá þá; sjáðu þá! Ef þú ert búinn að sjá þá; sjáðu þá aftur! Stoner af bestu gerð!

Hvað kostar???
Ekki krónu

Má ég mæta undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna???
NEI!