STÓRFRÉTTIR!!!!!

Bandaríska stórsveitin Sonic Youth er, samkvæmt óstaðfestum sögusögnum á leið til landsins í Júlí á þessu ári! Ég veit ekki alveg hversu áreiðanlegt þetta er en þetta væri samt brjálað! Ég frétti þetta hjá vini mínum sem frétti þetta hjá vini sínum sem vinnur hjá fókus. Hann sagði að honum hafi verið sagt, að samningar hefðu náðst við Sonic Youth um að spila á klakanum í sumar! Þetta væru tónleikar ársins ásamt Godspeed you black emperor!

NOTA BENE: þetta eru ENNÞÁ sögusagnir! …en ég trúi þessum orðrómi mun betur en mörgum öðrum.

Hverjir myndu fara?