Var að skoða plötusafnið mitt áðan og fann disk með þessari líka fínu sveit, And You Will Know Us By The Trail Of Dead, og varð undrandi á hve frábær platan, Madonna, er frábær - miklu betri en mig minnti.
Sá magnaða tónleika með þeim fyrir tveim árum í Þjóðleikhúskjallarnum þar sem þeir performuðu svo brjálæðislega að þeir gátu ekki tekið uppklappslög vegna þess að öll hljóðfærin voru meira eða minna eyðilögð.
Ég keypti diskinn eftir tónleikana, en varð fyrir nokkrum vonbrigðum með hann þá en er að endurmetan núna og get svo sannarlega mælt með honum.