Váááá… Ég hef ekkert heyrt þvílíka gæsahúðartónlist síðan ég Ágætis Byrjun kom út. Lögin á nýjasta disk þeirra, Origin of Symmetry, eru hvert öðru betra.

Hæstu punktarnir eru New Born, (sem er með flottari leiðum til að byrja disk), Hyper Music (Svakaleg bassalína), Citizen Erased (gítarriff dauðans í bland við guðdómlega rödd söngvarans Matthew Bellamy) og Micro Cuts (ég lá kylliflatur, það þurfti að slá mig utanundir til þess að fá mig á fætur aftur).

Sem sagt, frábær diskur sem inniheldur ekki eitt frábært lag, heldur ellefu stykki!

Two thumbs and two toes up.
-nomaad