Eftirlifandi meðlimir Metallica, þeir James Hetfield, Lars Ulrich og Kirk Hammett byrja að vinna að sinni áttundu stúdíóplötu í dag, 23. apríl. Þeir eru enn sem komið er ekki búnir að finna sér nýjan bassaleikara og mun James Hetfield sjálfur spila á bassann fyrst í stað en áður en þeir geta stigið á svið á ný verða þeir að finna bassaleikara.
Það verður að sjálfsögðu beðið í ofvæni eftir plötunni sem á að koma út seint á þessu ári eða snemma á því næsta.