Ég er orðinn admin á Rokk, aðallega vegna þess að ég var hvort eð er að taka við öðru áhugamáli og bauð mig í leiðinni fram í þetta, ég veit að ýmsum langaði að verða admin hér og ég segi þá bara sorrí við þá, ég er heppnari í þessu tilfelli.

Ég ætla að reyna að sjá um þetta áhugamál (og reyndar það sem opnar á morgun) af fullum krafti.

Ég fer eftir reglum Huga að öllu og mun reyna að koma í veg fyrir óþarfa leiðindi hérna, ég eyddi tveimur póstum núna áðan af korkinum sem höfðu angrað mig, þeas þar sem einn notandi var kallaður fáviti og pósturinn gekk bara út á það og síðan þar sem einhver náungi sem ég kannast ekkert við var kallaður hommafífl. Ég mun ekki reyna að koma í veg fyrir umræður en báðir þessir póstar byggðust bara á leiðindum og ég held að flestir séu sammála mér.

Með efni sem ég samþykki hér þá mun ég reyna að halda efni sem er óviðkomandi Rokki utan við áhugamálið, sérstaklega ef mér finnst það eiga einhvern annan samastað innan Huga. Ef eitthvað sem er kannski ekki akkúrat Rokk en passar hvergi annars staðar kemur hingað inn þá mun ég líklega samþykkja það.

Ég lét inn Ég ætla kubb og mun halda honum inni, endilega komið með góðar hugmyndir um hvað á að vera í honum þegar spurningin er orðin gömul.

Ég verð harðari á hvaða efni er samþykky hérna eftir því sem meira er að gera, ef það er kúrkutíð þá samþykki ég kannski eitthvað fleira.
<A href="