Eins og allir vita voru 18000 manns á Metallica tónleikunum. Ég var að velta fyrir mér hvaða fleiri hljómsveitir gætu fengið svona gífurlegan áhorfendafjölda hér á landi. Ég myndi halda allavega Iron Maiden og U2. Hvaða fleiri bönd finnst ykkur koma til greina til að fylla Egilshöllina næstu 2-3 árin?