Það hafa orðið nokkur slys og hér ætla ég að nefna nokkur……

Anthony Kiedis:

Anthony Kiedis tognaði illa á ulnlið þegar hann varð í bílslysi í Júlí árið 1997. Hann var á Harley Davidson hjóli. Söngvarinn slasaðist þegar hann klessti á bíl í u beygju í Los Angeles. Honum var flýtt á spítala þar sem hann lá í 5 klukkutíma aðgerð. Sögusagnir segja að hann hafi verið felltur af eldri konu líka á mótorhjóli sem gleymdi að líta í baksýnisspegilinn.

Tveim mánuðum síðar, trommarinn Chad Smith:

Trommarinn Chad Smith fór úr axlalið er hann keyrði á bíl og kastaðist af mótorhjólinu sínu við Los Angeles. Hann sá ekki umferðaljósin sem voru þar. Dave Navarro fyrrverandi meðlimur sveitarinnnar hringdi í tímaritið Addicted to noise og sagði frá. “Hann er heppinn að vera á lífi, hann er allur bólginn en mesti skaðinn er á öxl hans” sagði Dave í símtalinu. Chad var flýtt á Cedars-Sinai spítalann í Los Angeles. Læknarnir sögðu honum að slaka á í mánuð.
SupSup