Titillinn átti að vera svolítið sjokkerandi en ég var að lesa grein í mogganum sem undirstrikar í eitt skipti fyrir öll hvers konar fávitar ráða þar ríkjum, hérna kemur kvikindið í öllu sínu veldi.


Hljóð úr kúti Guns'n'Roses: Safnplata en ekkert nýtt

Eins og rokkhundar væntanlega vita þá hefur Axl Rose reist Guns'n'Roses upp frá dauðum. Síðan hafa unnendur sveitarinnar goðsagnarkenndu beðið með öndina í hálsinum eftir nýju efni og jafnvel hafði verið gefið í skyn að það myndi skila sér í ár. Nú hefur hins vegar verið tilkynnt að ekkert slíkt sé í gangi. Engin ný plata sé væntanleg.
Hins vegar verður gefin út strax í næsta mánuði, 15. mars nánar tiltekið, safnplata sem mun innihalda öll vinsælustu lög sveitarinnar. Platan kemur til með að heita Chinese Democracy og verður fyrsta útgáfa sveitarinnar síðan tökulagaplatan The Spaghetti Incident kom út árið 1993. Reyndar var lagið Oh My God á plötunni með tónlistinni úr End of Days sem kom út en þar með er upp talin útgáfa sveitarinnar í góðan áratug. Ekkert nýtt lag verður á safnplötunni en gömlu slagararnir verða allir þarna, alls 14 talsins.

Hvernig dettur fólki það til hugar að skrifa svona grein í moggan um eitthvað sem það veit greinilega ekkert um????

Jújú rétt er það Geffen ætla að bomba út Greatest Hits plötu sem mun einfaldlega bera það nafn en Chinese Democracy mun ennþá vera í vinnslu og hefur HVERGI verið tilkynnt um það hvort hún komi ekki út á þessu ári eða ekki. Orð götunar er svo að Axl Rose sé allt annað en sáttur með þessa ákvörðun að gefa út Greatest Hits plötu en hann mun víst vera að íhuga lögsókn á hendur Geffen til að koma í veg fyrir að platan fari á markað.

Ég ætla svo að láta lagalistan á þessari plötu fylgja með en hann er að mínu mati ekki eins sterkur og hann gæti verið.


1. Welcome To The Jungle (from Appetite for Destruction, 1987)
2. Live And Let Die (from Use Your Illusion 1, 1991)
3. Knockin' On Heaven's Door (from Use Your Illusion 2, 1991)
4. Sweet Child Of Mine (from Appetite for Destruction, 1987)
5. November Rain (from Use Your Illusion 1, 1991)
6. Patience (from G ‘n’ R Lies, 1989)
7. Paradise City (from Appetite for Destruction, 1987)
8. Civil War (from Use Your Illusion 2, 1991)
9. You Could Be Mine (from Use Your Illusion 2, 1991)
10. Don't Cry (original) (from Use Your Illusion 1, 1991)
11. Yesterdays (from Use Your Illusion 2, 1991)
12. Ain't It Fun (from The Spaghetti Incident, 1993)
13. Since I Don't Have You (from The Spaghetti Incident, 1993)
14. Sympathy For The Devil (from soundtrack, Interview With A Vampire, 1995)