halló gott fólk nýlega þá gaf pabbi minn mér gull á pappír þ.e.a.s. eiginhandaráritun frá led zeppelin sem hann fékk þegar þeir spiluðu hér á landi forðum daga. Hann sagði mér að þeir hefðu ekki gert mikið í því að skrifa eiginhandaráritanir þannig að það eru til mjög fá stykki.
En það sem ég er að spá er að ég hef farið á ebay og allskyns netverslanir og aldrei hef ég séð neina eiginhandaráritun frá þeim til sölu, og það sem mig langar að vita er hversu mikils virði þetta er ekki það að ég hafi í huga að selja þetta ég er bara mjög forvitinn getur einhver hjálpað mér?

með kveðju tagman.