Var að renna yfir miðana sem voru til sölu þarna fyrir ofan. Fólk segist ÞVÍ MIÐUR missa af tónleikunum vegna óviðráðanlegra ástæðna. Samt er fólkið að selja miðana á 2-3000 krónum meira en þeir keyptu hann á.

Því er ég feginn að vera búinn að tryggja mér miða fyrir löngu og þurfa ekki að kaupa hann í gegnum huga á uppsprengdu verði.

Ég býst nú samt við að allir séu löngu komnir með leið á Muse-korkum. Varð bara að koma þessu til skila.