Jæja, þá er komið að því. Í tilefni að því að platan er að koma í verslanir um mánaðamótin mun Kanis halda veglega útgáfutónleika í Kompaníinu á Akureyri laugardagskvöldið 29. nóvember kl. 20:00.

Aðgangseyrir er litlar 1000 krónur og platan verður á tilboði á staðnum, eða á 1500 krónur fyrir tónleikagesti.

Vegna anna verður ekki unnt að halda útgáfutónleika annars staðar á landinu á næstunni, en Kanisþyrstum landsmönnum er bent á að drífa sig norður! Útgáfutónleikar verða svo víðar á landinu seinna, en nánar um það síðar.

Nánari upplýsingar um Kanis á www.kanis.is