Eins og flestir vita sem hlusta á útvarp og þá aðallega X-ið, þá er komið nýtt lag í spilun með Noise! Paranoid Parasite heitir það og er að mínu mati MAGNAÐ!!! Ótrúlega kraftmikið og vel samið lag sem kom mér töluvert á óvart þrátt fyrir að vera mikill Noise aðdáandi fyrir. Gítarleikur Einars er á heimsmælikvarða! Þetta sóló er ekkert eðlilega geggjað! Trommur Ragnars Sólberg og bassi Stefáns eru einnig mjög góðar! Það besta finnst mér söngur Einars sem er mjög kraftmikill og alveg ótrúlega stórt raddsvið sem drengurinn hefur! Með þessu lagi eru Noise algjörlega búnir að finna sitt eigið sánd! Og svo ég kvóti í annan hugara : Noise eru búnir að þróast gífurlega og marka nú sína eigin stefnu! Þið sem eruð búin að heyra lagið hvað finnst ykkur??