Hæ, ég veit að greinar um Nirvana og Kurt Cobain hafa sennilega komið nokkuð oft hingað, en mig langaði bara svo mikið að skrifa eina! Þannig að .ið sem hafið ekki áhuga, sleppið því bara að lesa hana í staðin fyrir að þrasa!


Nirvana

Kurt Cobain var söngvari, gítarleikari, laga- og textasmiður hjómsveitarinnar Nirvana, ásamt því að vera umdeildur en jafnframt elskaður leiðtogi

sveitarinnar. Kurt fæddist í smábænum Hoquaim þann 20. febrúar 1967. Móðir hans var gengilbeina en faðir hans bifvélavirki. Fjölskyldan flutti brátt til lítils bæjar að nafni Aberdeen.
Á yngri árum sínum var Kurt oft veikur af berkjukvefi.
Er hann var sjö ára skildu foreldrar hans. Hann varð þá mjög ófelagslyndur og erfiður, hann náði sér aldrei almennilega eftir þetta. Eftir skilnaðinn flutti Kurt á milli ættingja og á tímabili bjó hann undir brú. Á þessu tímabili í æfi sínu kynntist hann Krist(Chris) Novoselic og þeir hlustuðu mikið á breskar hljómsveitir s.s. Sex Pistols. Í gagnfræðaskóla var Kurt lagður í einelti en hann hefndi sín þó með ýmsum ráðum, Kurt hefur ætíð haft óbeit á skólakerfinu.
Kurt og Krist stofnuðu ótal hljómsveita áður en Nirvana varð að raunveruleika. Í fyrstu lék Kurt gjarnan á trommur en Krist söng og spilaði á gítar. Það var ekki fyrr en árið 1986 sem Nirvana varð til og aðeins þremur árum seinna fengu þeir sinn fyrsta plötusamning.
Þegar Kurt varð frægari og hjómsveitin vinsælli fór Kurt að hafa áhyggjur af því að þeir væru að laða að vitlausa hópa samfélagsins, þá sem punk-samfélgið hefur óbeit á. Í febrúar 1992 giftist Kurt söngkonunni Courtney Love sem þegar var barnshafsndi. Í ágúst sama ár fæddist dóttir hans sem síðar var skírð Frances. Kurt reyndi að fyrirfara sér sama ár en án árangurs. Þann sjöunda apríl fannst Kurt dáinn á heimili sínu og læknar sögðu hann hafa dáið tveimur dögum áður. Lögreglan telur hann hafa framið sjálfsmorð en fjölmargar sannanir benda til þess að hann hafi verið myrtur og er ég sjálf þeirrar skoðunar.
Krist(Áður Chris) Novoselic fæddist 16. maí árið 1965. Krist var tékkneskur að uppruna en bjó í Bandaríkjunum. Hann kynntist Kurt þegar Kurt hafði verið rekinn að heiman af móður sinni.Dave var
ekki í Nirvana er þeir tóku upp sína fyrstu plötu, Bleach, en þá var Chad Channing á trommur ef frá er talin “Floyd the barber”, “Paper cuts” og “Downer” þar sem Dale Crover barði trommurnar. Dave var afturmóti eini trommarinn við upptökur á Nevermind og In Utero en á Incesticide léku Dale Crover, Danny Peters, Chad Channing og Dave Grohl allir á trommur. Núna er Dave í hjómsveitinni Foo Fighters en ekki lengur sem trommari heldur söngvari og lagahöfundur. Í Foo Fighters er einnig Pat Smear en hann lék stöku sinnum á gítar í Nirvana. Þeir hafa gefið út tvær plötur og þykir tónlistarstíll þeirra svipa til Nirvana.